Hér bullar Erla
afmćli, vöfflur og fleiraErla B. Skagfjörđ Bergsdóttir
Var að koma úr níutíu ára afmæli sem var haldið fyrir hana elsku Þuru ömmu. Hún Þura er yndsleg kona, ég varð þeirra forréttinda aðnjótandi að kynnast henni fyrir tíu árum síðan. Þegar Hjalti kynnti mig fyrir henni i Fíladelfíu þá horfði hún á mig og sagði er Jesús ekki yndislegur að frelsa þig og gefa þér allt?? Níu árum seinna er hún komin á elli og hjúkrunar heimilið á Droplaugarstöðum og talar enn um það að hún mun þegar ég gekk hiklaust fram á fyrstu samkomunni minni. Og "þú hikaðir ekki einu sinni" og tókst á móti Jesú í hjartað þitt. Þegar hún sér Hjalta þá ljómar hún, það er misjafnt hvað hún man mikið en hún þekkir hann Hjalta og er dugleg að segja mé rað hann sé góður drengur. Þegar ég verð níutíu ára ætla ég að verða svona eins og Þura að þó maður gleymi öllu þá gleymir maður ekki Jesú.Notaði helgina í að þrífa og borða vöfflur með Guðrúnu og Sæmundi með öllum viðhengjum þar sem ég var lögð í blaut einelti...mér tókst nefnilega að eyðileggja Gaggía kaffivelina þeirra með þvi að hella vatni í kaffikvörnina en ekki vatnstankinn !!! Jájá ekki bjóða mér í kaffi.
Erla hikar ekki
Spice girlsErla B. Skagfjörđ Bergsdóttir
Það er heimildarmynd um Spicegirls á Skjá einum og ég man eftir lítilli stelpu sem dansaði og söng með lögunum þeirra. Það vantaði efri tennurnar og stundum lak hor niður úr nefinu, svo að það heyrðist hátt þegar hún saug upp í nefið.Stundum dansaði ég með þeim spice girlsunum mínum...minningar, minningar.
En hér er allt með kyrrum kjörum, eitt stykki neyðarvistunarbarn og það gengur mjög vel.
Helga er farin í MCI og það er tómlegt án hennar hér heima. Það er ótrúlega hljótt við matarborðið þegar hún er ekki heima...engar sögur af leiðinlegum kúnnum sem koma í Húsasmiðjuna.
Það hafa orðið miklar breytingar hér á heimilinu. Við erum í sumar búin að ræða það fram og til baka, við hjónin hvað og hvert Guð væri að fara með okkur. Við erum búin að leita Guðs í bæn og höfum tekið þá ákvörðun að hætta sem forstöðufólk í Hvítasunnukirkjunni á Akranesi. Já þú sem varst að frétta þetta ert sennilega mjög hissa en trúðu mér við vorum það líka.
Við erum ekki hætt í kirkjunni eða neitt svoleiðis heldur upplifum við að Guð sé að færa okkur til. Það er ekki alltaf þeir sömu sem leggja rafmagnið í húsið og steypa grunninn, svo er flott fólk hér á Skaganum og þau munu fá fullt af tækifærum til að spreyta sig í að prédika og tala og fleira.
Við munum vera hér áfram meðan Guð segir okkur að vera hér. Við erum mjög þakklát fyrir þann tíma sem við höfum verið hér og vitum að við erum rík af reynslu og höfum þroskast mikið sem manneskjur og breyst vonandi til hins betra. Vonandi höfum við náð að gera eitthvað smá rétt og verið til gagns í Guðsríkinu.
Það sefnir í að ég verði atvinnulaus um mánaðarmótin nema Drottinn grípi inní og geri eitt stykki kraftaverk. Og Hann fer létt með það.
Undirbúningur fyrir Jesúkonu ráðstefnuna er á fullu og er þetta skemmtilegt og spennandi verkefni.
Við vorum frekar upptekin í gær fórum á ættarmót með fölskyldu tengdapabba, í skíðaskálanum í Hveradölum. Gaman að því, brunuðum sov heim á Skagann í afmæli á Vesturgöu 162 í miklu betri kökur en í Skíðaskálanum. Helgina endaði ég svo í æðruleysismessu í Akraneskirkju með yndilegu fólki. Alltof langri færslu er lokið.
Erla er æðrulaus
SHIT..Erla B. Skagfjörđ Bergsdóttir
Stundum þykir mér erfitt að finna fyrirsögn eitthvað sem grípur ykkur mínu tryggu aðdáendur.Þetta er eitt af þeim bloggum.Allt að komast í gírinn og Edgar fór í skólann í morgun. Þegar hann kom heim spurði ég hann þessarar klassísku spurningar, hvernig var í skólanum?? Hann tuldraði ágætt..og tjáði sig ekki meir um það.
Hann verður í ensku í vetur og hann talar dásamlega ensku með blandi af heimatilbúnum hreim og færeyskum, hrikalega fyndið.
Hann var spurður (hinir krakkarnir líka) hann kynni eitthver orð í ensku. Gerum okkur grein fyrir því að kennarinn var að hitta hann í fyrsta skipti og veit að hann er ári á undan og allt það.
Drengurinn minn sló um sig með enskukunnáttu sinni og sagði SHIT!! og gat sagt hvað það þýðir á íslensku SKÍTUR. Hann var svo stoltur þegar hann sagði okkur frá þessu yfir kvöldmatnum áðan. Það verður gaman að fylgjast með honum í enskunni.
Erla í djúpum skít
TrallalalalaaaErla B. Skagfjörđ Bergsdóttir
Mikið að ske mikið í vikunni...fundir, kynna ráðstefnu og útvarpsviðtal og allir að hlusta. Á laugardaginn er svo barnaafmæli og á föstudaginn skólasetning og mitt í þessu þarf ég að sinna heimili ,krökkum og kallinum. Já það er aldrei rólegt á þessum bæ. J'u ókei sundum er rólegt. Það er verið að leggja lokahönd á þakið og það er ekkert smá flott með nýjum þakgluggum sem snúa í suður.Ég lærið loksins áttirnar hér á Skaganum þegar ég fékk þakglugga...það eru fleiri gluggar á suðurhliðinni. Ég er ein sú allra áttavilltasta í bænum. Sem betur fer er Hjalti með áttirnar á hreinu annars væri ég löngu týnd og tröllum gefin.
Erla fer í austur, nei vestur, hvert er hún að fara??
Sćlan á endaErla B. Skagfjörđ Bergsdóttir
og hversdagsleikinn tekinn við. Í morgun vaknaði ég við ískaldan raunveruleikann og hann öskraði á mig: SUMARFRÍIÐ BÚIÐ !! Og ég var svo lengi að vakna, ég ætlaði bara ekki að getað opnað augun augnlokin voru svakalega þung. En það hafðist og ég var komin á fætur þega börnin byrjuðu að hrúgast inn.Þetta sumarfrí hefur einkennst af þvælingi og því að vera með skemmtilegu fólki. Það er líka búið að vera mikið um ða vera á heimilinu og mikið af fólki. Við höfðum nóg að gera í júní með neyðarvistunarbörn, smiði og pabba gamla. Svo erum við 5 - 6 í fjölskyldunni og á daginn voru svo dagmömmubörnin hér líka og mikill gestagangur. En í svona umhverfi þrífst ég langbest. Nógu mikið af fólki og nógu mikið að gera.
að styttist í að lífið falli aftur í rútínuna sem mér þykir svo agalega góð þegar börnin fara að sofa kl . 20. Skólinn hefur sinn sterka ramma og skipar mikla reglu.
Kotmótið tókst vel í alla staði og var nærvera Guðs mikil á hverri samkomu og mæti hann fólki í löngum bunum...mikið er ég samt glöð að þurfa ekki að bíða í röð eftir blessunum Guðs. Jesús sannar það að hann elskar okkur jafnheitt og fyrir 2000 érum. Á Kotmótum er alltaf gaman að hitta systkini sín sem maður hittir ekki annars. Þetta er eins konar uppskeru hátíð.
Þakskipti ganga vel og er allt annað að sjá húsið mitt, en núna lítur út fyrir að það leki heitt vatn undir flísarnar á neðri hæðinni inni hjá okkur. Ekki gaman, að öllum líkindum og vonandi fáum við þetta í gegnum tryggingarnar því þetta er mega dæmi. Það þarf að rífa upp flísarnar sem brotna við það og brjóta upp gólfið til að finna rörið sem lekur...meiriháttar mál. Og ryk um allt. Það tekur því sko ekki að þrífa fyrr en um jól. Svo þarf að fá nýtt gólfefni og hvað ætti það að vera?? Það er seinni tíma vandamál fyrst er að finna lekann...ég þarf að leika stóra Poolýönnu núna.
Gleðifréttirnar eru þær að pabbi gamli er búinn að fá íbúð til leigu. Hann er að flytja í Hraunbæinn og það er búið að vera gaman að fylgjast með honum því hann er svo glaður.
Ég tók að mér og spurði engan, að innrétta íbúðina fyrir hann og keypti hann sófasett og lasyboy stól sem ég fann á netinu á 15 þúsund kall. Geri aðrir betur og það fyndna var að konan sem seldi honum sófann þekkti mig úr kirkjunni...allt, allt of löng færsla að enda komin.
Erla með ryk í augunum
Í níu ár hefur...Erla B. Skagfjörđ Bergsdóttir
..Hjalti umborið mig með kostum og öllum göllunum mínum og þeir eru ekki fáir skal ég segja ykkur.Hann er besti vinur minn
Hann hlær þegar aðrir mættu alls ekki hlægja að mér
Hann sér mig langoftast fúla
Hann þurrkar tárin mín og hvetur mig áfram
Hann veit að ég borða alls ekki döðlur
Hann veit að stundum er best að segja, já elskan
Hann nennir alltaf að vera með mér
Hann hefur gefið mér tvö frábær börn
Hann tekur þátt í uppeldinu með mér
Hann getur fengið mig til að brosa þegar öðrum tekst það ekki
Hann leiðréttir mig
Hann kennir mér
Hann kveður mig alltaf með kossi á morgnana,líka þegar ég sef
Hann dregur fram það besta í mér og stundum það versta
Hann er jarðsambandið mitt
Hann er minn.
Erla elskar Hann
SumarfríErla B. Skagfjörđ Bergsdóttir
Þá er það brostið á sumarfríi langþráða, erum komin norður yfir heiðar til Akureyrar. Ferðin gekk vel, við fórum þessi stóra og samheldna fjölskylda á tveimur bílum það dugði ekkert minna. Þeir feðgar láta sig dreymaum einhverja háfjallaferð..í Flateyjardal. Vonandi að þeir komist, á meðan ætla ég að spóka mig á Akureyri setjast á kaffihús helst úti og njóta mín með krakkalakkana. Ég ætlaði að skrifa meira en þarf að fara að gera sósu með lærunum sem malla í ofninum..uuummm. Hafið það gott á meðan ég er í fríi.Erla í sósugerð
Í dagErla B. Skagfjörđ Bergsdóttir
Í dag ætla ég að stíga yfir óhreina tauið, taka þig í fangið og fara með þig út að leika.Í dag ætla ég að skilja diskana eftir í vaskinum og láta þig kenna mér að setja saman nýja púslið.
Í dag ætla ég að taka símann úr sambandi og hafa slökkt á tölvunni og sitja með þér úti í garði og blása sápukúlur.
Í dag ætla ég ekki að skammast þó þú suðir um ís, heldur ætla ég að kaupa hann handa þér.
Í dag ætla ég ekki að hafa áhyggjur afþví hvað þú ætlar að verða þegar þú verður stór eða efast um ákvarðanir sem ég hef tekið varðandi þig.
Í dag ætla ég að leyfa þér að baka smákökur sem mega vera allavegana í laginu.
Í dag ætla ég að bjóða þér á skyndibitastað og kaupa barnabox handa okkur báðum, svo þú getir fengið bæði leikföngin.
Í dag ætla ég að halda þér í fanginu og segja þér frá því þegar þú fæddist og hversu mikið ég elska þig.
Í dag ætla éag að leyfa þér að sulla í baðinu og ekki vera reið yfir bleytunni.
Í dag ætla ég að leyfa þér að vaka lengur og sitja úti á svölunum og telja stjörnurnar.
Í dag ætla ég að kúra hjá þér og lesa bók þó að ég missi af uppáhalds sjónvarpsþættinum mínum.
Í dag þegar ég renni fingrunum í gegnum hárið á þér, þegar þú ferðað sofa þá ætla ég að þakka Guði fyrir þessa stórkostlegustu gjöf sem nokkur getur hlotið.
Í dag mun ég hugsa til allra þeirra foreldra sem standa yfir gröfum barna sinna, en ekki rúmum þeirra, og allra þeirra foreldra sem eru á sjúkrastofnunum og horfa á börnin sím kveljast og þjást í hljóði vegna þess að þau geta ekkert gert og biðja fyrir þeim..
Og þegar ég kyssi þig góða nótt mun ég þakka Guði fyrir að hafa gefið mér þig og bið hann ekki um neitt nema einn dag í viðbót.
Í minningu dóttur Steven Curtis Chapman söngvara.
sól sól skín á mig..Erla B. Skagfjörđ Bergsdóttir
þetta er eitthvað sem ég fíla. Sól og blíða og flögnuð nef.Ég er með Sunnevu í æfingabúðum í sundi, við förum í sundlaugina á hverjum degi og það gengur vel. Fyrstu skiptin voru skelfileg því henni var meinilla við sturtuna og það vissu það allir sem voru í húsinu. Í dag öskraði hún ekki heldur ríghélt sér í lærið á mér í sturtunni...smart. En hún er alveg að fíla sundlaugina vill fara í rennibrautina og alles.
Það er búið að breyta ásýnd hússins míns það eru stillansar komnir í kringum það og hafa Hjalti og pabbi gamli verið að smíða þá og þess á milli hef ég plokkar flísar og rósaþyrna úr þeim. Rósaþyrnarnir komu vegna heyskaparins hér á Háteignum.
Edgar Gylfi er byrjaður að æfa fótbolta eins og þið vitið og var að keppa á fyrsta mótinu um síðustu helgi. Kaupþingsmótinu og það var fullt prógramm alla helgina. Pabbinn svaf með honum og tók vakt sem liðsstjóri og við kynntumst foreldrum og drengjum. Edgar eignaðist nýjan vin og er mjög ánægður með hann. Vinurinn gæti reyndar ekki átt heima lengra frá honum það er allur Akraneskaupstaðurinn á milli þeirra...en þeir eiga báðir hjól.
Á laugardagskvöldinu var foreldrakaffi og þar hitti ég foreldra af Skaganum sem ég þekki en mér til mikillar ánægju hitti ég hana Hrund sem var með mér í Flúðaskóla og við vorum saman á reúníoninu um daginn. Mikið fannst okkur þetta sniðugt annaðkvort hittumst við á 10 ára fresti eða einu sinni í mánuði.
Ég hef ekki verið mikið í tölvu undanfarið vegna veðurs. Það er stutt í sumarfrí og mig hlakkar svo til,við förum til Akureyrar og verðum þar með tengdó og systur hans Hjalta og hennar fjlsk. og það er alltaf gaman í þessum fríum. Svo er Akureyri frábær staður og ég er búin að redda mér nokkrum kaffibollum.
En það er aftur neyðarástand á heimilinu vegna þess að expressókaffvélin er biluð...einhvern tíman hótaði ég þvíað kaupa mér alvöru ef þessi bilaði líka svo ég verð senilega að gera það...spurning með frjáls framlög í kaffisjóðinn minn.
Erla í sólbaði
Sláttur hafinnErla B. Skagfjörđ Bergsdóttir
á Akranesi. Ótrúlegt að það skuli ekki vera viðtal við okkur í fjölmiðlum. Við fengum loksins sláttuorfið lánað og Hjalti byrjaði í morgun og ég skellti mér út til hans að raka í rigningunni. Við vorum svakalega búleg eins og alvöru bændur..vantaði bara geit á beit. Margt verið brallað í dag, fór og keypti skó á prinsessuna á bauninni því hún var að fara í brúðkaup og ég átti eftir að gefa henni sumargjöfina. Hún er með hálsbólgu og drakk panódíl hot áður en hún fór.Til að geta rakað varð ég að kaupa hrífu, hún fékkst aðalbúðinni.
Fór með Sunnevu Rut og Edgar Gylfa í hjólatúr í rigningunni. Hún Sunneva var svo ánægð og vildi ekki fara heim því það var svo gaman.
Tók til og bakaði eftir þetta allt saman.
Núna eru allir af yngri kynslóðinni sofnaðir (vonandi) og við ða krúttast yfir em stofunni. Á morgun er nýr náðardagur og kirkja, prédikun frá Alísi og þau í mat og læti og köku. Bíllinn kom til landsins í dag vveeeiiiii.
Erla með harðsperrur eftir rakstur